Includes unlimited streaming of Kysstu mig þungi spánverji
via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
ships out within 5 days
Purchasable with gift card
€10EURor more
about
Hversu löng er meðganga dverga? Ein mínúta, fimmtán mínútur? Við því er ekki til neitt eitt rétt svar. Eru dvergar mjög nánir eða duglegir? Erfitt að segja til um! En ef svo er, má gera því skóna, að allt þeirra eðli sé mjög til þess fallið, að erfitt sé að beinlínis elta þá. En þó svo margir dvergar séu felugjarnir er ekki alfarið loku fyrir það skotið að þeir sjáist jafnvel á dansleikjum. Sumir dansa vel, aðrir dansa ekki.
Fæstir dvergar geta talist til spámanna Biblíunnar, eða enginn. Og flestir þeirra teljast til sirkusdverga eða alls c.a tuttugu. Þó bið ég ykkur kæru vinir að gleyma ekki undir neinum kringumstæðum Kalla KFUM-dverg frá Mannheim, þótt hann hafi verið hvorugt af þessu. Kalli átti sjö skynsamar dætur sem stálu úrum af þreyttum ferðalöngum í neðanjarðarlestarstöðvum. Hann var frábær og dætur hans einnig.
Margar lærðar bækur hafa verið ritaðar um ágæti dverga. Allt frá hlutverk þeirra í helstu styrjöldum 20 aldar. Til útsjónarsemi þeirra á sviði byggingarlistar. Þá sérstaklega hvað varðar uppbyggingu íþróttamannvirkja. Mér er sérstaklega minnistæð í því samhengi, bók um byggingu badmintonhallarinnar í Laugardal. Um daginn las þó ég aðra ansi skemmtilega bók, um ást dvergs nokkurs, austurísks að uppruna, á þrem mismunandi litum: gulum, gráum og bleikum. Hann lést í lok bókarinnar sem var mjög sorgleg.
Uppruna dverga má rekja til Þýskalands. Eins og marga skrítna og jafnvel enn skrítnari hluti. Það var á þriðja degi aðventu árið 1814 að í borginni Dresden fæddist fyrsti dvergurinn. Hann var skírður Júlíus, í höfuðið á rauðum villiketti. Júlíus var að sögn kunnugra dvergur geðstyrður mjög, langrækinn með eindæmum og afar slakur skákmaður. Sikileyjarvörn hans rústir einar. Júlíus giftist aldrei og þegar hann var kominn á miðjan aldur dó hann heldur snögglega. Dánarbú hans var ein tóm dós. Ekki neftóbak, en örugglega eitthvað annað, til dæmis: vinstur, marfló, banjó og bróderaður hattur, ónothæfur með öllu. Ekki er þetta þó vitað.
Margar hljómsveitir hafa tileinkað verk sín Júlíusi. Þar má upp telja hljómsveitirnar: Sebadoh, Wet wet wet, Seal, Genesis, Mogwai, Simply Red sem og hljómsveitir þeirra Russell Crowe og Keanu Reeves. Hvert augnablik fyrir sig er tileinkað Júlíusi. Það veit hver maður. Hann er hinn skarpi og hinn eitraði. Hann er í senn húfa skíðamannsins sem griffla dansarans. Augu hans eru stálbúr.
Three renditions of “Snowflakes in July” explore all aspects of the song’s stunning beauty, including a mind-blowing 17-minute live version. Bandcamp New & Notable Aug 15, 2020
On “Evolution,” múm’s Gyða Valtýsdóttir writes tiny, starlit songs, her delicate vocals wreathed by hushed instrumentation. Bandcamp New & Notable Oct 14, 2018
The proceeds of this extensive compilation of punk and rock go towards the healthcare costs of beloved musician Dan Wild-Beesley. Bandcamp New & Notable Sep 21, 2017