We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Ób​æ​rilegur sl​é​ttleiki h​ú​ð​arinnar

by Per: Segulsvið

/
  • Streaming + Download

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    Purchasable with gift card

      €10 EUR  or more

     

1.
Jólin nálgast, Ég vafra um einn ofan í bæ, Pæli í því hvað ég eigi að gefa þér Jólin nálgast, Ég veit að þetta verður allt í læ En ég er kominn í smá vandræði Jólin nálgast, Er ég of seinn? Hvað gefurðu konu með ofnæmi? Er ég of seinn? Að panta eitthvað fallegt frá Shanghæ Er ég of seinn? Að flytja inn erlent Gazellu-hræ Er ég of seinn? Að kaupa glussatjakk, ómæ ómæ Er ég of seinn? Að sérsauma á þig mittis-jakka Er ég of seinn? Að hanna fyrir þig hugbúnaðarpakka Jólin nálgast, Verslunarstjórinn veifaði mér hæ, og rétti mér kremprufu Jólin nálgast, Ég ræddi við skósmiðinn í Grímsbæ, bauð mér í Þorláksmessu-samkvæmi Jólin nálgast, Er ég of seinn? Hvað gefurðu konu með ofnæmi Er ég of seinn? Að panta eitthvað fallegt frá Shanghæ Er ég of seinn? Að flytja inn erlent Gazellu-hræ Er ég of seinn? Að kaupa glussatjakk, ómæ ómæ Er ég of seinn? Að sérsauma á þig mittis-jakka? Er ég of seinn? Að hanna fyrir þig hugbúnaðarpakka?
2.
Ég færi þér poka af magnesíum flögum Helli volgri baðolíu yfir mjúkan háls Klæði þig í þurra og örvandi bast-lúffu Bíð þér með mér í aðventuferð uppá Krókháls Les upphátt fyrir þig innihald kremprufu Árstíðarbundinnar vöru úr the Body Shop Ræðum nærandi mild áhrif papaya Sæki handa þér nýþveginn frotte-slopp Berfættur læðist gegnum balsam-ilminn Ber lífrænt rakakrem á hrjúfan sköflunginn Það er svo dásamlegt að dekra aðeins við húðina Tilhlökkun jólanna dansar við krem hjúpinn Þú stígur upp úr árlegu jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, jólaljósin glampa á spegilsléttu enni þínu Þú stígur upp úr árlegu jólabaði,, Einstök Aloa-Vera blanda hjúpar þína vanga Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar Hvað kostar aftur þessi frábæri húðmaski? Hefur virka efnið eitthvað verið rannsakað? Er þessi skeggolía áreiðanleg vegan? Framleidd í Köln fyrir Frakklandsmarkað Hreinsum óhreinindi. Ég vill vernda húðina Veita henni þann raka sem hún þarfnast Hvernig er það? Á mamma þín rakakrem? Allir þurfa eiga gott og græðandi lósjön Ég hvísla að þér nærandi orðum um húðina Maka ilmsöltum á spegilsléttar axlirnar Húðin ferðbúin, rakastigið fullkomið. Skellum okkur í aðventu ferð uppá Krókháls. Þú stígur upp úr árlegu jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, jólaljósin glampa á spegilsléttu enni þínu Þú stígur upp úr árlegu jólabaði,, Einstök Aloa-Vera blanda hjúpar þína vanga Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar
3.
Á leiðinni inn í eldhús, þungur var matarpokinn Nýkominn úr Bónus, Að versla í jólamatinn Var að raða í ísskápinn, Þegar að hringir farsíminn Á línunni Rene Russo, á leiðinni í aðventuferð á upphækkuðum Musso, nýkomin úr hnjáaðgerð í sárinu smá ígerð, til Chicago með frjálsri aðferð Ég var að raða inn í ísskápinn, Þegar hringir hjá mér farsíminn á línunni Rene Russo, hún var á leið til Chicago í árlega aðventuferð, og tilhlökkunin umtalsverð hafði keypt sér glænýjan Musso, og hvíslaði hlýlega gleðileg jól Nýkomin úr baði, mikilvægt að þurrka sér Hárið slétt og fagurt, spáný jólanærfötin alveg tandurhreinn líkaminn, þegar að hringir farsíminn Á línunni Rene Russo, skilaboðin voru einföld Hún var á leiðinni í jólabingó, í rassvasanum bingóspjöld Þetta yrði yndislegt aðventukvöld, í vinning ethernet mótöld Ég var úr jólabaði nýkominn, þegar hringir hjá mér farsíminn Á línunni Rene Russo, var á leiðinni í jólabingó Hana langaði að forvitnast, hvort ég gæti séð af smá graflax Rene Russo skríkti og hló, og hvíslaði blíðlega gleðileg jól
4.
Rennur upp á ný, mitt núðlusafarí, ljúfsárt jólafrí, nýtt núðlubakarí Gljáir pasta pressan, Hátíðarnúðlu messan Rennur upp á ný, mitt núðlusafarí ljúfsárt jólafrí, nýtt núðlubakarí rennur upp á ný mitt núðlujólafrí Því veröldin er sí-breytilegt havarí Ég gef þér að smakka, Kattgraut frá Tahití Hræri útí maukið. Blágreni uppá djókið Þyrlast gegnum hakkið, Eggjanúðlur sveittar Og þínar miklu axlir Af jólagræðgi hringja Rennur upp á ný, mitt núðlusafarí ljúfsárt jólafrí, nýtt núðlubakarí rennur upp á ný, mitt núðlujólafrí Því veröldin er sí-breytilegt havarí Rennur upp á ný, mitt núðlusafarí Púrtvín og sérrí, feitt húðlæknapartí rennur upp á ný, mitt núðlujólafrí Því veröldin er sjí-kagó og svínerí Rennur upp á ný, mitt núðlusafarí glernúðlufyllerí, kvöldin á Kanarí Rennur upp á ný, mitt núðlujólafrí Því veröldin vill sí-felt meira sellerí‍
5.
„Haukur minn! Myndirðu koma og hjálpa mér aðeins vinur. Ég er í smá vandræðum með jólabrúsann. Ventillinn virðist eitthvað stífur. Lommér að sjá, já já, nú held ég þetta sé komið. Ég náði að mýkja ventilinn aðeins. Jæja strákar. Nú opna ég á brúsann maður. Stígðu aðeins frá Arnar minn, þú vilt ekki fá kalkúnskip í augað ástin. Jæja, allir tilbúnir. Nú sprautast þau út maður! Hæ hæ! Nú sprautast út jólin..“ Með mínum vísifingri, ég úða nú skraut´og glingri Út þrýstist jóladúkur, blágrenitré og rjúpur ilmandi greninálar, svo kætast kardinálar Því að í einum hvelli ... það sprautast út jól Það sprautast út ... aðventuljósin mild það sprautast út ... bróderuð dýrlingamynd það sprautast út ... keramik jólakind Það sprautast út ... Það sprautast út jól Enn jólabrúsinn dansar, glitrandi skart og kransar Úr úðabrúsa rennur, gyllt jólaskraut og spennur Prestur í mittisjakka, glussi á jólatjakka Allthreint í einum hvelli ... það sprautast út jól Það sprautast út ... Músastigar að vild það sprautast út ... jólastjarna sígild það sprautast út ... Ilmandi sumargotsíld Það sprautast út ... Það sprautast jól Ekkert í brúsann vantar, jólaöl einhver pantar Út streymir kaldur safi, aðventuorkugjafi Glasseruð kalkúnaspjót, Orabaunafljót Allthreint í einum hvelli .. það sprautast út jól
6.
Sofið rótt rafiðnaðarmenn, og látið ykkur dreyma Sofið rótt rafiðnaðarmenn, ég sendi ykkur hlýja strauma Dreymi ykkur ljós, rökkur er ósiður, með yður sé jólafriður Dreymi ykkur ljós, með yður sé jólafriður, desember var erfiður Sofið rótt rafiðnaðarmenn, í stellingu sem þið kjósið Sofið rótt rafiðnaðarmenn, við þökkum ykkur ljósið Skellið ykkur í Aðventuferð, aðventuferð af samnorrænni hefð Þótt skrúfjárn ykkar séu öll agnarsmá, án ykkar væru jólin litlaus og grá Skellið ykkur í Aðventuferð, aðventuferð af samnorrænni hefð Þótt skrúfjárn ykkar séu öll agnarsmá, án ykkar væri skinkan litlaus og hrá Sofið rótt rafiðnaðarmenn, og látið ykkur dreyma Sofið rótt rafiðnaðarmenn, og öllu rafmagni gleyma Dreymi yður ljós, á svalahandriðum, stuttum sterkum lekaliðum Dreymi ykkur ljós, með yður sé friður, og leggið skrúfjárnin niður Sofið rótt rafiðnaðarmenn, í stellingu sem þið kjósið Sofið rótt rafiðnaðarmenn, við þökkum ykkur ljósið Skellið ykkur í Aðventuferð, aðventuferð af samnorrænni hefð Þótt skrúfjárn ykkar séu öll agnarsmá, án ykkar væru jólin litlaus og grá Skellið ykkur í Aðventuferð, aðventuferð af samnorrænni hefð Þótt skrúfjárn ykkar séu öll agnarsmá, án ykkar væri skinkan litlaus og hrá
7.
Á leið ofannúr Fellum, við ókum undir brú í svörtum satínjökkum á stationbíl við þrjú Þá byrjaði að snjóa, við ræddum um kúngfú Ég rétti þér límmiða, með mynd af Diddú Við keyptum frosinn kalkún, Á tilboði útí Krambúð Barnið grét í bílstólnum, með bólgna slímhúð Við náðum niðrí í Hlíðar, Skepna útötuð í snúð Snýttu honum á þessu, Hrópaðir þú Yfir volgan jafning, múskati muldir þú Straukst mér um vangann, Afmyndaðan af bjúg Settum plötu á fóninn, Þú baðst um Eryku Badú Ég neitaði snarlega, Og setti á U2 … og setti á U2! Jól eru múskat, Jólin er í bjúg Jól í augum Bono, Jólin eru í uppstúf Jólin eru undir súð, Jólin eru U2 Jólin eru samt eiginlega, bara þú Jól niðrí Hlíðum, Jól í risíbúð Jól undir slefsmekkjum Jól undir slímhúð Jólin eru kalkúnn, Jólin eru út í búð Jólin eru samt eiginlega, bara þú Jól uppí Fellum, Jól útí í Katmandú Jól undir stýri, Jól í Renault Kangoo Jól eru hraðahindrun, Jól eru undir brú Jólin eru samt eiginlega, bara þú Jólin eru útbrot á nokkuð sléttri húð Jólin eru Ítalir með þunnan bleikan klút Jólin eru límmiðar á með myndum af Diddú Jólin eru samt eiginlega, bara þú
8.
Líkami minn er að þorna, Líkami minn er að þorna Ég þarf nauðsynlega að fá doldið lósjön Ég þarf örlítið lósjön á mitt enni Ég er til í það til í það, Ég er til í það til í það Örlítið krem, Örlítið krem, örlítið krem Líkama í soja marinera Líkama í soja marinera, ég er húðkapteinn soja húðkapteinn, soja húðkapteinn Raka þarfnast, raka þarfnast, raka þarfnast, ég þarfnast Líkami minn er að þorna, Líkami minn er að þorna Ég þarf nauðsynlega að fá dálítið lósjön Ég þarf örlítið lósjön á mitt enni É´r til í það til í það Líkami minn er að þorna, Líkami minn er að þorna Ég þarf nauðsynlega að fá dálítið lósjön Ég þarf örlítið lósjön á mitt enni É´r til í það til í það, É´r til í það til í það Örlítið krem, örlítið krem, örlítið krem Raka þarfnast, rðaka þarfnast, raka þarfnast, raka þarfnast
9.
Ég óska mér tólf tonna beltagröfu, Smurolíuhandbók fylgir með Bakkói á Hitachi traktorsgröfu, Landbúnaðartæki til sölu Glussadrifna snjótönn á skot-bómulyftara, Gömul steypuhrærivél Gott væri að eiga kraftmikinn trjákurlara, Og ódrepandi Hondu CR-V Hugheilar Jólakveðjur frá Per:Segulsvið, Traktorsdrifnar rafstöðvar, fellanleg rúlluhlið, Með einlægum óskum, Um glussa jóla-frið Hugheilar jolakveðjur frá Per Segulsvið. Mig langar í glussa knúnar skólpdælur, Með sex lítra forþjöppu Bensíndrifin staura bor, bása- og drenmottur, fjóra Continental hjólbarða Öfluga Yamaha rafstöð, sóluð vetrardekk, sterk og vönduð smíð Samstæða standlampa úr eik eða tekk, við eigum fyrirliggjandi Hágæða spæni og vel þurrkaða spón köggla, Nú aftur á tilboði Gott væri ef þú gæfir mér sænska vefstóla, Og ódrepandi Hondu CR-V Hugheilar Jólakveðjur frá Per:Segulsvið Lítið ekin Scania, Niðursoðin svið Með einlægum óskum um Glussajóla-frið Svefnbekkur frá Kristjáni, Weckman veggjastál, Brakandi ferskt og nýupptekið rósakál Með einlægum óskum um Glussajóla-frið Hugheilar Jólakveðjur frá Per: Segulsvið
10.
Ég ætla að kaupa frí-miða í röntgen, Og láta tékka vel á beinunum Ég er mögulega viðbeinsbrotinn, lenti illa í jólasveininum Ég var að opna ostasnakk, og guacamole ídýfu Þegar ég var sleginn niður, með vintage Yucatan smáskífu Ég býð þér í röngten um jólin, drífðu þig í Domus medica Saman í röntgen um jólin, síðan á Yucatan tónleika Ég sé að flest þín bein eru prýðilega sterk. Og ef ég geislaði þau, það yrði tímamótaverk Um axlir mínar renna röntgengeislar, Þessi rannsókn er all ítarleg Við gætum farið í ómskoðun, er þessi heilsugæsla ekki yndisleg? Ég vona að ég sé ekki verulega illa brotinn Því Yucatan á tónleikum, er einfaldlega stórbrotin Ég býð þér í röntgen um jólin, hittumst í Domus medica Saman í röntgen um jólin, síðan á Yucatan tónleika
11.
Skál! 03:55
Mig hlakkar alltaf, hlakkar alltaf svo til Tilhlökkunin er svo fáránlega mikil Að ég tek handa þér blokkflautu sóló Og skálum fyrir því að það eru að koma jól Skálum í ísköldum bjössa, skálum í kældum Lambrusco Skál fyrir Flosa og Bessa, takk fyrir gott flautusóló Skálum í áfengum vessa, skál fyrir hvítum jólasnjó beibí ég er með gott plan, ég er að spá í að fara æfa júdó Gerðir mynd af Sergei Bubka, þú hefur alltaf elskað stangarstökk Ég er aðeins meira fyrir tugþraut, hve lengi sýður maður hangikjöt Samt alltaf voða góður strákur, duglegur að borða salat Það er eiginlega gagnslaust, ökklarnir farnir að þrútna Það er alltaf svo indælt á aðventunni Þegar þú kemur upp tröppurnar í blokkinni Á bakinu ryðfrítt fender stálbanjó Við skálum fyrir því að það er að koma jól Skál fyrir mömmu Sergei Bubka Skál fyrir hlýjum inniskóm Skál fyrir skóm útí glugga Takk fyrir að eiga banjó Skál fyrir aðventuljósum Skál fyrir maltöl í dósum Beibí ég er með gott plan, förum í aðventuferð til Denver Jólin á næsta leyti, ástin mín Jólin á næsta leyti, ástin mín Leggjum kalkúnin í bleyti, allur löðrandi í feiti ÉG fer inní eldhús til að sækja meira Lambrusco Jólin á næsta leyti, ástin mín Jólin á næsta leyti, ástin mín Eigum við ekki örugglega hveiti, og hveitkím Beibí ég er með gott plan,fáum okkur meira meira Lambrusco Jólin á næsta leyti, ástin mín Jólin á næsta leyti, ástin mín

about

Jólin eru umfram allt hátíð húðarinnar. Hátíð ljóssins.
Hvað á Per Seguslvið við með þeirri fullyrðingu?
Það er jú einfalt og frekar augljóst.
Án húðarinnar væru jólin ekki nándar nærri eins hugguleg – það gefur auga leið. Allur jólaundirbúningur er alfarið háður tilveru húðarinnar.
Án húðarinnar, geta einföld verkefni, svo sem að kreista ferskar sítrónur yfir ilmandi graflaxinn, valdið langvarandi og þrálátum sviða.
Án húðarinnar, getur það eitt að ganga um klæddur í stífpressaðar jólabuxur reynst skelfileg lífsreynsla.

Án húðarinnar, er allt föndur, músastigar og öll vinna með krep-pappír alfarið úr myndinni.
Svo í almáttugs bænum, hugið því vel að húðinni yfir hátíðirnar.

credits

released December 2, 2023

Árni Þór Árnason: Listrænn yfirstjórnandi. Bassi í Jól á brúsa.
Lárus Sigurðsson: rafgítar, akústísk strengjahljóðfæri í hinum ýmsu lögum.
Nó Steinn Einarsson: Trommuleikur
Ólafur Josephsson: Rafgítar, Akústísk strengjahljóðfæri, Rafbassi,Söngur
Steindór Ingi Snorrason: Gítarleikur í Raka þarfnast
Svanur Magnús: Textasmiður og söngur

license

all rights reserved

tags

If you like Per: Segulsvið, you may also like: