We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

T​ó​nlist fyrir Hana

by Per: Segulsvið

/
  • Streaming + Download

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    Purchasable with gift card

      €8 EUR  or more

     

  • Compact Disc (CD) + Digital Album

    Önnur hljómplata Per:Segulsvið á geisladisk. Uppfull af músík fyrir hana.

    Includes unlimited streaming of Tónlist fyrir Hana via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    ships out within 5 days
    Purchasable with gift card

      €10 EUR or more 

     

  • Compact Disc (CD) + Digital Album

    Hér er á ferðinni geisladiskurinn "Tónlist fyrir hana". Gæddu þér á hana!

    Includes unlimited streaming of Tónlist fyrir Hana via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    ships out within 5 days
    Purchasable with gift card

      €10 EUR or more 

     

1.
Kjöthundur 02:50
Svengir son í lifrarkæfu faðir gleðst og smyr   kæfuhjúp á brauði tendrar glóir kjötmetið   Sækir barn í skepnu lifur opnast kæfuhlið   kviknar hratt í kviði sonar kæfuógeðið   Opnast á drengnum andlitið Myndar ósvikið kæfuhlið faðir af kæfu fjarlægir slímhjúp og frelsar kjötmetið   þrútna jaxlar þrútna leggir þrútna úlnliðir   súrnar húð og rauðir flekkir þekja andlitið   soðnar tannhold kjúkur bresta ökklar hrökkv´úr lið   Á enni krauma graftrar-vörtur slíkt er óþolið   Opnast á drengnum andlitið Myndar ósvikið kæfuhlið faðir af kæfu fjarlægir slímhjúp og frelsar kjötmetið
2.
Manstu kvöldin í Drammen? Við kynntumst kvöld eitt í Drammen Þú varst með klút Þú klæddist fötum frá Drammen Við kynntumst vel útí Drammen Kæri vinnur minn Manstu kvöldin í Drammen Kæri norski vinur...minn Kæri norski vinur...minn (hvísl) Þú kunnir norsku vel Talaðir hana fallega Ég kunni mjög lítið, mjög lítið Í norsku þá þú greipst þétt í úlnlið minn og bauðst til að kenna mér Ég tók því fagnandi Og eignaðist norskan vin Manstu kvöldin í Drammen? Vinur minn kær Manstu kvöldin í Drammen? Norski vinur minn Manstu kvöldin í Drammen? Þegar við drukkum af stút Drukkum norsku af stút Að eignast norskan vin Var sem ferskur andvari i inn í mitt líf Þú kunnir norsku vel Talaðir hana fallega Ég kunni mjög lítið, mjög lítið Í norsku þá þú greipst þétt í úlnlið minn og bauðst til að kenna mér Ég tók því fagnandi Og eignaðist norskan vin Að eignast norskan vin var sem ferskur andvari inn í líf mitt
3.
Minn kæri laglegi fisksali Ertu með þorskhrogn á tilboði? Hvíslaði bóndi með mjúkan gogg Mjúkan gogg Mjúkan gogg Mjúkan gogg Þú ert einnig mjög laglegur Goggur þinn frískur og líflegur Ég er með þorskhrogn á tilboði Nýkomin vestan af Þingeyri Ég elska hrogn. Ég elska hrogn. Ég elska hrogn Þetta eru prýðileg tíðindi Og þessi lifur er hnossgæti Ég er mjög sólginn í innmeti Hvíslaði bóndi með mjúkan gogg Mjúkan gogg Mjúkan gogg Mjúkan gogg Mjúkan gogg Ég vaska hrognin í saltvatni Og steikti þau upp úr smjörlíki Minn kæri laglegi fisksali Ég elska hrogn Ég elska hrogn Ég elska hrogn
4.
Á súrmeti Sigvaldi Faðir þinn þig aldi Jós upp úr gímaldi Súrsuðu folaldi Glataði sinni móður Sigvaldi varð trítilóður Reif niður veggfóður Reif upp runnagróður   Hann Sigvaldi Valgarðsson Hann Sigvaldi Valgarðsson Hann Sigvaldi Valgarðsson Hann Saknar móður sinnar Ráfaði einn eftir Sæbraut Höfði kjökrandi laut Útataður í rauðgraut ákvað að hætta í tugþraut Hellti ferskum lífdísel yfir nýveiddan skötusel fólki varð ekki um sel Sigvaldi líktist Vin Diesel   Hann Sigvaldi Valgarðsson Hann Sigvaldi Valgarðsson Hann Sigvaldi Valgarðsson Saknar móður sinnar   Reif hausinn af púðluhundi Kvöld eitt í Fishersundi Á leið heim af fundi Endað á Reykjalundi Veiddi krækling og murtu Fór með saltkjöt í sturtu Átti kynmök við urtu Synti nakinn í burtu Hann Sigvaldi Valgarðsson Hann Sigvaldi Valgarðsson Hann Sigvaldi Valgarðsson Saknar móður sinnar  
5.
Vikartindur 02:46
"Við verðum að ná olíunni úr skipinu Við vinnumhérna allan sólarhringinn Olían þykknar þegar hún kólnar Hún má alls ekki kólna 37 tonn af smurolíu 20 tonn af gasolíu 370 tonn af svartolíu alls um 430 tonn-" Vikartindur minn... gámaflutningaskip Vikartindur minn... Gámaflutningaskip Vikartindur minn... Gámaflutningaskip Hvar varstu vorið ´97 Er Vikartindur Strandaði? Vikartindur minn... Gámar frá noregi Gámaflutingaskip Vélarvana skip Vikartindur minn... Gámar frá noregi Gámaflutingaskip Vélarvana skip Vikartindur minn... Gámar frá noregi Gámaflutingaskip Vélarvana skip 9000 brúttólesta Gámaflutninga skip.. Gefur stöðugt á skipið Átta-níu vindstig Suðvestan hvassviðri Logskerum Vikartind Í lest og á þilfari Gámar frá Noregi Stöðugt gefur á skipið Átta níu vindstig Skolar gámunum útbyrðis Suðvestan hvassviðri Hann verður horfinn úr fjörunni snemma í haust Vikartindur minn... gámaflutningaskip Vikartindur minn... gámaflutningaskip Vikartindur minn... gámaflutningaskip Vikartindur minn... gámaflutningaskip
6.
Tjakkur 03:22
Þú snertir úlnlið minn varlega Hérna er tjakkurinn væni, sagðir þú Tjakkurinn spenntur þér við hlið Þú ýttir tjakknum til mín af varkárni Gjörðu svo vel væni minn minn, sagðir þú og brostir hérna er tjakkurinn vinur Á tjakknum sat bretti af selleríi Þú notaðir tjakkinn sem yfirskyn til að segja mér frá starfi þínu Fölsk notkun á tjakki Ég sé um öll innkaup á erlendu grænmeti, Ég panta það beint gegnum alnetið Ég ábyrgst að gæði kálsins séu fullnægjandi. Ég bætti líka alla meðhöndlun á plómum Þær eru ferskari en nokkru sinni fyrr Þetta var alveg til skammar hérna áður Nú fer allt mangó beint í kæli Ég hef yfirumsjón með þroskun banananna. Allt gæðaeftirlit er á minni könnu Það er mikilvægur þáttur í mínu starfi, sagðir þú og brostir Þú horfðir á mig af ákafri velvild og vildir ræða meira en þolinmæði mín var á þrotum ég tók þétt um nærliggjandi ananas Og barði þig í andlitið með honum ananaskjöt slettist yfir tjakkinn og yfir stafla af fersku sellerí
7.
Ég sakna þín nýþungi spánverjinn minn Þú varst mjúkur og sætur og hlýr Húð þín var dúnmjúk og dýrðleg þín kinn Og ökklarnir digrir sem brýr Æ, kysstu mig Pablo í síðasta sinn Ó, akfeiti spánverjinn minn Djúpt augu þín sokkin í andlitið inn Undirhakan sem heilt ævintýr Þungi þinn ærinn, þýður raddblærinn og sílspikuð ást þín svo hýr Æ, kysstu mig Pablo í síðasta sinn Ó, akfeiti spánverjinn minn
8.
Bílkerra af heilveiti Heilmikill matarsóti Rúmt Bakkó af sæsalti Og seiðandi lyftiduft við útbjuggum orlydeig við hituðum olíu dátt kraumaði... á pönnunni dvergur... í orly Rúm jata af ediki Hjólbörur af léttöli Að endingu samanvið við stífþeyttum eggjagutl við útbjuggum orlydeig við hituðum olíu dátt kraumaði.... á pönnunni dvergur... í orly dvergur... í orly Skreið inn í jafninginn dvergurinn smávaxinn kraumaði á pönnunni djúpsteikingarfeitin og ilmandi orlydeig... og ilmandi orlydeig... og ilmandi orlydeig... og ilmandi orlydeig...
9.
Gasvinur 04:37
Góðan dag vinur Húð þín er slétt og mjúk suðar logsuðuvélin ég verð að eyða ketti smiðs kveiktu á gasbrennaranum vinur beindu honum að kettinum Við höfum það huggulegt saman Á meðan að högninn fuðrar upp Á meðan að kötturinn fuðrar upp Á meðan að kötturinn fuðrar upp Við höfum það notalegt Ég verð að eyða ketti smiðs Ég verð að eyða ketti smiðs Húð þín svo slétt og mjúk Og kötturinn fuðrar upp Í gasskýi liðast upp Ilmandi kattaduft Gríptu gasbrennarann ljúfur Logsjóddu, logsjóddu dátt Svíður kött örlítið í síðu Soðnar köttur brátt Brostu vinur minn kæri Köttur í gasloga eyðist upp Sæktu þér soja-latte bolla og sítrónuköku stubb þú ert með mjög fallegt nisti og kannt svei mér að logsjóða hlær gaslogi við ketti og húðinni af honum flettir Gaslogi minn bjartur Bræðir bröndóttan kött kraumar á kisa pelsinn Og kvikindið kveinkar sér Bráðnar köttur brátt Bráðnar köttur dátt mjálmar köttur hátt -mjálm- Latte-bolla og kökustubb Meðan kötturinn eyðist upp Kötturinn fuðrar upp -mjálm- Húðinni af honum flettir Þeir eru seigir þessir kettir -mjálm-
10.
Áhlaupi hundruðustu og sextándu panzer sveitar þýska heimsveldisins er aftrað við Munaðarnes Orlofsbyggð BSRB er óhult um sinn   Hilter horfir yfir Norðurá frá Varmalandi nakið hörund hans blikar mjúkt sem silki skapar býsna eftirminnilegan contrast við grásvartann tígris-drekann í kjarrinu Þetta er gagnslaust! þetta er gagnslaust! Mótstaðan er geysimikil BSRB BSRB Hitler grætur vonsvikinn Handan hæðar humma skriðdrekari í lausagangi Hundur sleikir svalan grillvökva af vörum Hilters Hann fær sér rjúkandi límónute og sönglar Enya Sprengjum rignir yfir minigolfvöllinn Munaðarness Sérsveit orlofsbyggðar BSRB á skilinn járnkrossHún tætir sundur skriðdreka sem músastigar væru Þetta er gagnslaust! þetta er gagnslaust! Mótstaðan er geysimikil BSRB BSRB Hitler grætur vonsvikinn
11.
Saltkjöt 03:49
ég gleymi seint þegar ég sá þig fyrst þú grillaðir saltkjöt Þú grillaðir saltkjöt Grillaðir saltkjöt með Svenný Þú grillaðir saltkjöt með Kenný Þú varst með hnausþykka barta Og vel snyrtan enikuhjálm flaulesibuxum og brúnni flíspeysu Frá verkfræðistofu í Mjódd ...en það stöðvaði þig ekki Þú grillaðir þrátt fyrir það   Hár þitt var skraufþurrt og líflaust Það blakti í léttum andvaranum Lafði spegilslétt niður vangann Þú varst með kjöt á skálmunum ...en það stöðvaði þig ekki Þú grillaðir þrátt fyrir það   Þú sagðir mér í trúnaði Að hvuttaslím væri þér kært Og ökklar þínir í Chicagó Ég skildi ekki hvað þú áttir við Og rétti þér meira oreganó þú talaðir mikið um tugþraut og ilmaðir eins og spjótkastari Þú ræddir einnig við mig um Jeff Goldblum taldir hann einn fremsta leikara samtímans ...en það stöðvaði þig ekki Þú grillaðir þrátt fyrir það   Móðir þín sat inni bifreið Hún var með ljósbrúnan kúrekahatt Þú sagðir mér að hún væri Rene Rousso En það var klárlega alls ekki satt ...en það stöðvaði þig ekki Þú grillaðir þrátt fyrir það   þú grillaðir saltkjöt Þú grillaðir saltkjöt Þú grillaðir saltkjöt með Grétari
12.
Spergilkál 03:00
Eina andvökunótt uppí rúmi ég lá Úti sveimaði hljótt dvergur erlendis frá Mjúkur sem úthafsrækja Var hans agnar-, agnarstutti háls ég heyrði hann hrækja og viss að hann var frjáls Dverginn dreymir um spergil Dverginn dreymir um spergil Dreymir um spergil Dreymir um spergilkál Erlent smámenni skreið Gegnum runna aflangur ég þarf kökusneið ég heyrð‘ann ýlfraði svangur sperrtur, nakinn, spenntur ég beið dvergur náttmyrkri hulinn yfir grasið nú skreið Skild´ann bít´á öngulinn? Dverginn dreymir um spergil Dverginn dreymir um spergil Dreymir um spergil Dreymir um spergilkál Spergil-gildran spennt Agnið ilmandi brokkólí Var dvergurinn dósent, nýkominn frá Napólí? Þennan dýrindis dverg vil ég gjarnan uppstoppa ég vill sjúga hans beinmerg og nýta húð hans í sloppa/og smyrja honum á hjólkoppa Dverginn dreymir um spergil Dverginn dreymir um spergil Dreymir um spergil Dreymir um spergilkál
13.

about

Per býður í dans. Breiðskífa Per:Segulsvið,„TÓNLIST FYRIR HANA", er nú komin út eftir átta ára hönnunarferli. Skífan er sneisafull af ilmandi dægurlögum og gómsætri dansmúsík sem heilla mun jafnt menn sem hænsnfugla. Með léttri úlnliðshreyfingu getið þið nálgast afurð þessa í snatri.

credits

released November 1, 2013

Svanur Magnús: Texti
Ólafur Josephsson: músík
Árni Þór Árnason: músík og myndskreyting
------------------------------------------------------------
Lárus Sigurðsson: akústísk hljóðfæri
Pétur Magnússon: vélstjóri

license

all rights reserved

tags

If you like Per: Segulsvið, you may also like: