Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
Purchasable with gift card
€1EUR or more
about
Jólin eru tími ást og friðar, það veit Per. Per hefur kosið að fagna aðventunni með því að deila úr brúsa sínum.
Úr brúsa Per: Segulsvið þrýstast út hlutir er tengjast gjarnan aðventunni. Brúsi Pers varðveitir gjörvöll jólin.
lyrics
„Haukur minn! Myndirðu koma og hjálpa mér aðeins vinur. Ég er í smá vandræðum með jólabrúsann. Ventillinn virðist eitthvað stífur. Lommér að sjá, já já, nú held ég þetta sé komið. Ég náði að mýkja ventilinn aðeins. Jæja strákar. Nú opna ég á brúsann maður. Stígðu aðeins frá Arnar minn, þú vilt ekki fá kalkúnskip í augað ástin. Jæja, allir tilbúnir. Nú sprautast þau út maður! Hæ hæ! Nú sprautast út jólin..“
Með ventils-vísifingri, ég úða nú skraut´og glingri
Út þrýstist jóladúkur, blágrenitré og rjúpur
ilmandi greninálar, svo kætast kardinálar
Því að í einum hvelli ... það sprautast út jól
Nú sprautast út ... aðventuljósin mild
Nú sprautast út ... bróderuð dýrlingamynd
Nú sprautast út ... keramik jólakind
Það sprautast út ... Það sprautast út jól
Enn jólabrúsinn dansar, glitrandi skart og kransar
Úr úðabrúsa rennur, gyllt jólaskraut og spennur
Prestur í mittisjakka, glussi á jólatjakka
Allthreint í einum hvelli ... það sprautast út jól
Nú sprautast út ... Músastigar að vild
Nú sprautast út ... jólastjarna sígild
Nú sprautast út ... Ilmandi sumargotsíld
Það sprautast út ... Það sprautast jól
Ekkert í brúsann vantar, jólaöl einhver pantar
Út streymir kaldur safi, aðventuorkugjafi
Glasseruð kalkúnaspjót, Orabaunafljót
Allthreint í einum hvelli .. það sprautast út jól
credits
released December 11, 2020
Árni Þór Árnason: Teikningar og Bassaleikur
Lárus Sigurðsson: Rafgítar skraut
Ólafur Josephsson: Söngur, Trommur, Kassagítar, hljómborð
Svanur Magnús: Texti og upphafstal
On “Evolution,” múm’s Gyða Valtýsdóttir writes tiny, starlit songs, her delicate vocals wreathed by hushed instrumentation. Bandcamp New & Notable Oct 14, 2018
Smooth, sophisticated pop with neoclassical flourishes from the Berlin-based duo of Fabian Till and Birk Buttcherey. Bandcamp New & Notable May 2, 2024
Another devastatingly beautiful batch of indie rock confessionals from Ontario singer, producer, and multi-instrumentalist Linnea Siggelkow. Bandcamp New & Notable Apr 28, 2024