1. |
Er ég of seinn?
03:40
|
|||
Jólin nálgast, Ég vafra um einn ofan í bæ,
Pæli í því hvað ég eigi að gefa þér
Jólin nálgast, Ég veit að þetta verður allt í læ
En ég er kominn í smá vandræði
Jólin nálgast, Er ég of seinn? Hvað gefurðu konu með ofnæmi?
Er ég of seinn? Að panta eitthvað fallegt frá Shanghæ
Er ég of seinn? Að flytja inn erlent Gazellu-hræ
Er ég of seinn? Að kaupa glussatjakk, ómæ ómæ
Er ég of seinn? Að sérsauma á þig mittis-jakka
Er ég of seinn? Að hanna fyrir þig hugbúnaðarpakka
Jólin nálgast, Verslunarstjórinn veifaði mér hæ,
og rétti mér kremprufu
Jólin nálgast, Ég ræddi við skósmiðinn í Grímsbæ,
bauð mér í Þorláksmessu-samkvæmi
Jólin nálgast, Er ég of seinn? Hvað gefurðu konu með ofnæmi
Er ég of seinn? Að panta eitthvað fallegt frá Shanghæ
Er ég of seinn? Að flytja inn erlent Gazellu-hræ
Er ég of seinn? Að kaupa glussatjakk, ómæ ómæ
Er ég of seinn? Að sérsauma á þig mittis-jakka?
Er ég of seinn? Að hanna fyrir þig hugbúnaðarpakka?
|
||||
2. |
||||
Ég færi þér poka af magnesíum flögum
Helli volgri baðolíu yfir mjúkan háls
Klæði þig í þurra og örvandi bast-lúffu
Bíð þér með mér í aðventuferð uppá Krókháls
Les upphátt fyrir þig innihald kremprufu
Árstíðarbundinnar vöru úr the Body Shop
Ræðum nærandi mild áhrif papaya
Sæki handa þér nýþveginn frotte-slopp
Berfættur læðist gegnum balsam-ilminn
Ber lífrænt rakakrem á hrjúfan sköflunginn
Það er svo dásamlegt að dekra aðeins við húðina
Tilhlökkun jólanna dansar við krem hjúpinn
Þú stígur upp úr árlegu jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar
Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, jólaljósin glampa á spegilsléttu enni þínu
Þú stígur upp úr árlegu jólabaði,, Einstök Aloa-Vera blanda hjúpar þína vanga
Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar
Hvað kostar aftur þessi frábæri húðmaski?
Hefur virka efnið eitthvað verið rannsakað?
Er þessi skeggolía áreiðanleg vegan?
Framleidd í Köln fyrir Frakklandsmarkað
Hreinsum óhreinindi. Ég vill vernda húðina
Veita henni þann raka sem hún þarfnast
Hvernig er það? Á mamma þín rakakrem?
Allir þurfa eiga gott og græðandi lósjön
Ég hvísla að þér nærandi orðum um húðina
Maka ilmsöltum á spegilsléttar axlirnar
Húðin ferðbúin, rakastigið fullkomið.
Skellum okkur í aðventu ferð uppá Krókháls.
Þú stígur upp úr árlegu jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar
Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, jólaljósin glampa á spegilsléttu enni þínu
Þú stígur upp úr árlegu jólabaði,, Einstök Aloa-Vera blanda hjúpar þína vanga
Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar
|
||||
3. |
Aðventuferð
04:19
|
|||
Á leiðinni inn í eldhús, þungur var matarpokinn
Nýkominn úr Bónus, Að versla í jólamatinn
Var að raða í ísskápinn, Þegar að hringir farsíminn
Á línunni Rene Russo, á leiðinni í aðventuferð
á upphækkuðum Musso, nýkomin úr hnjáaðgerð
í sárinu smá ígerð, til Chicago með frjálsri aðferð
Ég var að raða inn í ísskápinn, Þegar hringir hjá mér farsíminn
á línunni Rene Russo, hún var á leið til Chicago
í árlega aðventuferð, og tilhlökkunin umtalsverð
hafði keypt sér glænýjan Musso, og hvíslaði hlýlega gleðileg jól
Nýkomin úr baði, mikilvægt að þurrka sér
Hárið slétt og fagurt, spáný jólanærfötin
alveg tandurhreinn líkaminn, þegar að hringir farsíminn
Á línunni Rene Russo, skilaboðin voru einföld
Hún var á leiðinni í jólabingó, í rassvasanum bingóspjöld
Þetta yrði yndislegt aðventukvöld, í vinning ethernet mótöld
Ég var úr jólabaði nýkominn, þegar hringir hjá mér farsíminn
Á línunni Rene Russo, var á leiðinni í jólabingó
Hana langaði að forvitnast, hvort ég gæti séð af smá graflax
Rene Russo skríkti og hló, og hvíslaði blíðlega gleðileg jól
|
||||
4. |
Núðlusafarí
03:53
|
|||
Rennur upp á ný, mitt núðlusafarí, ljúfsárt jólafrí, nýtt núðlubakarí
Gljáir pasta pressan, Hátíðarnúðlu messan
Rennur upp á ný, mitt núðlusafarí
ljúfsárt jólafrí, nýtt núðlubakarí
rennur upp á ný mitt núðlujólafrí
Því veröldin er sí-breytilegt havarí
Ég gef þér að smakka, Kattgraut frá Tahití
Hræri útí maukið. Blágreni uppá djókið
Þyrlast gegnum hakkið, Eggjanúðlur sveittar
Og þínar miklu axlir
Af jólagræðgi hringja
Rennur upp á ný, mitt núðlusafarí
ljúfsárt jólafrí, nýtt núðlubakarí
rennur upp á ný, mitt núðlujólafrí
Því veröldin er sí-breytilegt havarí
Rennur upp á ný, mitt núðlusafarí
Púrtvín og sérrí, feitt húðlæknapartí
rennur upp á ný, mitt núðlujólafrí
Því veröldin er sjí-kagó og svínerí
Rennur upp á ný, mitt núðlusafarí
glernúðlufyllerí, kvöldin á Kanarí
Rennur upp á ný, mitt núðlujólafrí
Því veröldin vill sí-felt meira sellerí
|
||||
5. |
Jól á brúsa
03:20
|
|||
„Haukur minn! Myndirðu koma og hjálpa mér aðeins vinur. Ég er í smá vandræðum með jólabrúsann. Ventillinn virðist eitthvað stífur. Lommér að sjá, já já, nú held ég þetta sé komið. Ég náði að mýkja ventilinn aðeins. Jæja strákar. Nú opna ég á brúsann maður. Stígðu aðeins frá Arnar minn, þú vilt ekki fá kalkúnskip í augað ástin. Jæja, allir tilbúnir. Nú sprautast þau út maður! Hæ hæ! Nú sprautast út jólin..“
Með mínum vísifingri, ég úða nú skraut´og glingri
Út þrýstist jóladúkur, blágrenitré og rjúpur
ilmandi greninálar, svo kætast kardinálar
Því að í einum hvelli ... það sprautast út jól
Það sprautast út ... aðventuljósin mild
það sprautast út ... bróderuð dýrlingamynd
það sprautast út ... keramik jólakind
Það sprautast út ... Það sprautast út jól
Enn jólabrúsinn dansar, glitrandi skart og kransar
Úr úðabrúsa rennur, gyllt jólaskraut og spennur
Prestur í mittisjakka, glussi á jólatjakka
Allthreint í einum hvelli ... það sprautast út jól
Það sprautast út ... Músastigar að vild
það sprautast út ... jólastjarna sígild
það sprautast út ... Ilmandi sumargotsíld
Það sprautast út ... Það sprautast jól
Ekkert í brúsann vantar, jólaöl einhver pantar
Út streymir kaldur safi, aðventuorkugjafi
Glasseruð kalkúnaspjót, Orabaunafljót
Allthreint í einum hvelli .. það sprautast út jól
|
||||
6. |
||||
Sofið rótt rafiðnaðarmenn, og látið ykkur dreyma
Sofið rótt rafiðnaðarmenn, ég sendi ykkur hlýja strauma
Dreymi ykkur ljós, rökkur er ósiður, með yður sé jólafriður
Dreymi ykkur ljós, með yður sé jólafriður, desember var erfiður
Sofið rótt rafiðnaðarmenn, í stellingu sem þið kjósið
Sofið rótt rafiðnaðarmenn, við þökkum ykkur ljósið
Skellið ykkur í Aðventuferð, aðventuferð af samnorrænni hefð
Þótt skrúfjárn ykkar séu öll agnarsmá, án ykkar væru jólin litlaus og grá
Skellið ykkur í Aðventuferð, aðventuferð af samnorrænni hefð
Þótt skrúfjárn ykkar séu öll agnarsmá, án ykkar væri skinkan litlaus og hrá
Sofið rótt rafiðnaðarmenn, og látið ykkur dreyma
Sofið rótt rafiðnaðarmenn, og öllu rafmagni gleyma
Dreymi yður ljós, á svalahandriðum, stuttum sterkum lekaliðum
Dreymi ykkur ljós, með yður sé friður, og leggið skrúfjárnin niður
Sofið rótt rafiðnaðarmenn, í stellingu sem þið kjósið
Sofið rótt rafiðnaðarmenn, við þökkum ykkur ljósið
Skellið ykkur í Aðventuferð, aðventuferð af samnorrænni hefð
Þótt skrúfjárn ykkar séu öll agnarsmá, án ykkar væru jólin litlaus og grá
Skellið ykkur í Aðventuferð, aðventuferð af samnorrænni hefð
Þótt skrúfjárn ykkar séu öll agnarsmá, án ykkar væri skinkan litlaus og hrá
|
||||
7. |
Jól undir súð
04:46
|
|||
Á leið ofannúr Fellum, við ókum undir brú
í svörtum satínjökkum á stationbíl við þrjú
Þá byrjaði að snjóa, við ræddum um kúngfú
Ég rétti þér límmiða, með mynd af Diddú
Við keyptum frosinn kalkún, Á tilboði útí Krambúð
Barnið grét í bílstólnum, með bólgna slímhúð
Við náðum niðrí í Hlíðar, Skepna útötuð í snúð
Snýttu honum á þessu, Hrópaðir þú
Yfir volgan jafning, múskati muldir þú
Straukst mér um vangann, Afmyndaðan af bjúg
Settum plötu á fóninn, Þú baðst um Eryku Badú
Ég neitaði snarlega, Og setti á U2
… og setti á U2!
Jól eru múskat, Jólin er í bjúg
Jól í augum Bono, Jólin eru í uppstúf
Jólin eru undir súð, Jólin eru U2
Jólin eru samt eiginlega, bara þú
Jól niðrí Hlíðum, Jól í risíbúð
Jól undir slefsmekkjum Jól undir slímhúð
Jólin eru kalkúnn, Jólin eru út í búð
Jólin eru samt eiginlega, bara þú
Jól uppí Fellum, Jól útí í Katmandú
Jól undir stýri, Jól í Renault Kangoo
Jól eru hraðahindrun, Jól eru undir brú
Jólin eru samt eiginlega, bara þú
Jólin eru útbrot á nokkuð sléttri húð
Jólin eru Ítalir með þunnan bleikan klút
Jólin eru límmiðar á með myndum af Diddú
Jólin eru samt eiginlega, bara þú
|
||||
8. |
Raka þarfnast
03:05
|
|||
Líkami minn er að þorna, Líkami minn er að þorna
Ég þarf nauðsynlega að fá doldið lósjön
Ég þarf örlítið lósjön á mitt enni
Ég er til í það til í það, Ég er til í það til í það
Örlítið krem, Örlítið krem, örlítið krem
Líkama í soja marinera
Líkama í soja marinera, ég er húðkapteinn
soja húðkapteinn, soja húðkapteinn
Raka þarfnast, raka þarfnast, raka þarfnast, ég þarfnast
Líkami minn er að þorna, Líkami minn er að þorna
Ég þarf nauðsynlega að fá dálítið lósjön
Ég þarf örlítið lósjön á mitt enni
É´r til í það til í það
Líkami minn er að þorna, Líkami minn er að þorna
Ég þarf nauðsynlega að fá dálítið lósjön
Ég þarf örlítið lósjön á mitt enni
É´r til í það til í það, É´r til í það til í það
Örlítið krem, örlítið krem, örlítið krem
Raka þarfnast, rðaka þarfnast, raka þarfnast, raka þarfnast
|
||||
9. |
||||
Ég óska mér tólf tonna beltagröfu,
Smurolíuhandbók fylgir með
Bakkói á Hitachi traktorsgröfu,
Landbúnaðartæki til sölu
Glussadrifna snjótönn á skot-bómulyftara,
Gömul steypuhrærivél
Gott væri að eiga kraftmikinn trjákurlara,
Og ódrepandi Hondu CR-V
Hugheilar Jólakveðjur frá Per:Segulsvið,
Traktorsdrifnar rafstöðvar, fellanleg rúlluhlið,
Með einlægum óskum, Um glussa jóla-frið
Hugheilar jolakveðjur frá Per Segulsvið.
Mig langar í glussa knúnar skólpdælur,
Með sex lítra forþjöppu
Bensíndrifin staura bor, bása- og drenmottur,
fjóra Continental hjólbarða
Öfluga Yamaha rafstöð, sóluð vetrardekk,
sterk og vönduð smíð
Samstæða standlampa úr eik eða tekk,
við eigum fyrirliggjandi
Hágæða spæni og vel þurrkaða spón köggla,
Nú aftur á tilboði
Gott væri ef þú gæfir mér sænska vefstóla,
Og ódrepandi Hondu CR-V
Hugheilar Jólakveðjur frá Per:Segulsvið
Lítið ekin Scania, Niðursoðin svið
Með einlægum óskum um Glussajóla-frið
Svefnbekkur frá Kristjáni, Weckman veggjastál,
Brakandi ferskt og nýupptekið rósakál
Með einlægum óskum um Glussajóla-frið
Hugheilar Jólakveðjur frá Per: Segulsvið
|
||||
10. |
Röntgen um jólin
03:05
|
|||
Ég ætla að kaupa frí-miða í röntgen, Og láta tékka vel á beinunum
Ég er mögulega viðbeinsbrotinn, lenti illa í jólasveininum
Ég var að opna ostasnakk, og guacamole ídýfu
Þegar ég var sleginn niður, með vintage Yucatan smáskífu
Ég býð þér í röngten um jólin, drífðu þig í Domus medica
Saman í röntgen um jólin, síðan á Yucatan tónleika
Ég sé að flest þín bein eru prýðilega sterk.
Og ef ég geislaði þau, það yrði tímamótaverk
Um axlir mínar renna röntgengeislar, Þessi rannsókn er all ítarleg
Við gætum farið í ómskoðun, er þessi heilsugæsla ekki yndisleg?
Ég vona að ég sé ekki verulega illa brotinn
Því Yucatan á tónleikum, er einfaldlega stórbrotin
Ég býð þér í röntgen um jólin, hittumst í Domus medica
Saman í röntgen um jólin, síðan á Yucatan tónleika
|
||||
11. |
Skál!
03:55
|
|||
Mig hlakkar alltaf, hlakkar alltaf svo til
Tilhlökkunin er svo fáránlega mikil
Að ég tek handa þér blokkflautu sóló
Og skálum fyrir því að það eru að koma jól
Skálum í ísköldum bjössa, skálum í kældum Lambrusco
Skál fyrir Flosa og Bessa, takk fyrir gott flautusóló
Skálum í áfengum vessa, skál fyrir hvítum jólasnjó
beibí ég er með gott plan, ég er að spá í að fara æfa júdó
Gerðir mynd af Sergei Bubka, þú hefur alltaf elskað stangarstökk
Ég er aðeins meira fyrir tugþraut, hve lengi sýður maður hangikjöt
Samt alltaf voða góður strákur, duglegur að borða salat
Það er eiginlega gagnslaust, ökklarnir farnir að þrútna
Það er alltaf svo indælt á aðventunni
Þegar þú kemur upp tröppurnar í blokkinni
Á bakinu ryðfrítt fender stálbanjó
Við skálum fyrir því að það er að koma jól
Skál fyrir mömmu Sergei Bubka
Skál fyrir hlýjum inniskóm
Skál fyrir skóm útí glugga
Takk fyrir að eiga banjó
Skál fyrir aðventuljósum
Skál fyrir maltöl í dósum
Beibí ég er með gott plan, förum í aðventuferð til Denver
Jólin á næsta leyti, ástin mín
Jólin á næsta leyti, ástin mín
Leggjum kalkúnin í bleyti, allur löðrandi í feiti
ÉG fer inní eldhús til að sækja meira Lambrusco
Jólin á næsta leyti, ástin mín
Jólin á næsta leyti, ástin mín
Eigum við ekki örugglega hveiti, og hveitkím
Beibí ég er með gott plan,fáum okkur meira meira Lambrusco
Jólin á næsta leyti, ástin mín
Jólin á næsta leyti, ástin mín
|
Streaming and Download help
If you like Per: Segulsvið, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp