Includes unlimited streaming of Kysstu mig þungi spánverji
via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
ships out within 5 days
Purchasable with gift card
€10EURor more
lyrics
Pappaspjald stóð þversum í koki. Sumir hafa syfjuð kok en glaðvakandi eru kok annarra. Glaðvakandi var það kok sem pappi stóð nú fastur í. Eigandi koks þessa var Guðmann nokkur Stálfjöður. Ættir hans voru rispaðar í skottusilfur og vængi allra Ryan-Air vélanna. Þess má snöggvast geta að allt hans kok bar merki gljáandi kryddsíldar á kommóðu og gljáandi kryddsíldar á loki gamallar snyrtiöskju. Snyrtiöskju með sléttflauels bróderingum á jöðrunum.
Það var einn súran og blautan, en fremur mikilsmetinn fimmtudag í febrúar 1983 að Guðmann týndi lyklunum að bifreið sinni. Áður en hann áttaði sig á staðsetningu lyklanna, gekk hann rakleitt í sprungu og sást aldrei aftur. Sonur hans fann lyklana nokkru síðar. Hugur sonarins sem við skulum kalla Geir eða Þórir, stefndi til æfinga. Og æfingar voru af hinu góða fyrir soninn. Þetta var lágvaxinn sonur en sonur þó engu að síður, með öll þau einkenni sem sonum fylgja. Þar má upp telja: Þrefallt glott, enni sem líkist glermusteri og grófan talsmáta. Líkt og allir góðir og trúir synir. Það hið sama kvöld og Geir eða Þórir fann lykla föður síns, skreið hann í sprungu og sást aldrei aftur.
Nú færumst við æ nær níunda tímanum. Því það var um níu leitið sem atvikið með pappaspjaldið átti sér stað. Undarlega viðraði þann dag. Rigndi strútsgoggum og djúpsteiktum töggum á tilteknum svæðum. Rok var á stökustað og jafnt bil milli bíla. Því jafnt bil milli bíla er mikilvægt. Að minnsta kosti jafn mikilvægt, ef ekki enn mikilvægara en rakt froskaegg sett á pramma eða á mjúkt þilfar skipa. Guðmann okkar lá í fyrrnefndri en umfram allt þröngri sprungu og svaf en kok hans lá andvaka. Meðan að kokið vakti dreymdi búk eigandans. Hann dreymdi herforingja með nýlega hvítlaukspressu um hálsinn sem rökræddi samfélagslegt gildi undirstrikunarpenna við glaðleg nagdýr í flíspeysum frá Íslenska Fjárfestingarbankanum.
Akkúrat þetta kvöld. Fljótlega uppúr níu. Festist pappaspjald í koki hans. Viku seinna losnaði það. Þá tók við hjá Guðmanni erfið 18 mínútna endurhæfing í tertuskreytingum.
Three renditions of “Snowflakes in July” explore all aspects of the song’s stunning beauty, including a mind-blowing 17-minute live version. Bandcamp New & Notable Aug 15, 2020
On “Evolution,” múm’s Gyða Valtýsdóttir writes tiny, starlit songs, her delicate vocals wreathed by hushed instrumentation. Bandcamp New & Notable Oct 14, 2018
The proceeds of this extensive compilation of punk and rock go towards the healthcare costs of beloved musician Dan Wild-Beesley. Bandcamp New & Notable Sep 21, 2017