We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Ób​æ​rilegur sl​é​ttleiki h​ú​ð​arinnar

by Per: Segulsvið

/
  • Streaming + Download

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    Purchasable with gift card

      €1 EUR  or more

     

about

Aðventan er orðinn heilagur tími fyrir Per:Segulsvið. Hann vaknar á aðventunni og vill færa. Í þetta skiptið deilir hann fallegum sálmi um húðina. Húðin er mikilvæg það veit alheimurinn. Hún þarfnast umönnunar og dekra þarf við hana svo hún sé í sínu besta ásigkomulagi um aðventuna. Góð og rakakennd húð minnkar streitu.

lyrics

Ég færi þér poka af magnesíum flögum
Helli volgri baðolíu yfir mjúkan háls
Klæði þig í þurra og örvandi bast-lúffu
Bíð þér með mér í aðventuferð uppá Krókháls

Les upphátt fyrir þig innihald kremprufu
Árstíðarbundinnar vöru úr the Body Shop
Ræðum nærandi mild áhrif papaya
Sæki handa þér nýþveginn frotte-slopp

Berfættur læðist gegnum balsam-ilminn
Ber lífrænt rakakrem á hrjúfan sköflunginn
Það er svo dásamlegt að dekra aðeins við húðina
Tilhlökkun jólanna dansar við krem hjúpinn

Þú stígur upp úr árlegu jólabaði,
Óbærilegur sléttleiki húðarinnar

Þú stígur upp úr alvöru jólabaði,
jólaljósin glampa á spegilsléttu enni þínu

Þú stígur upp úr árlegu jólabaði,,
Einstök Aloa-Vera blanda hjúpar þína vanga

Þú stígur upp úr alvöru jólabaði,
Óbærilegur sléttleiki húðarinnar

Hvað kostar aftur þessi frábæri húðmaski?
Hefur virka efnið ekki verið rannsakað?
Er þessi skeggolía áreiðanleg vegan?
hún var framleidd í Köln fyrir Frakklandsmarkað

Hreinsum óhreinindi. Ég vill vernda húð þína
Veita henni þann raka sem hún þarfnast
Hvernig er það? Á mamma þín rakakrem?
Allir þurfa eiga gott og græðandi lósjön

Ég hvísla að þér nærandi orðum um húðina
Maka ilmsöltum á spegilsléttar axlirnar
Húðin er ferðbúin, rakastigið fullkomið.
skellum okkur í aðventu ferð uppá Krókháls.

Þú stígur upp úr árlegu jólabaði,
Óbærilegur sléttleiki húðarinnar

Þú stígur upp úr alvöru jólabaði,
jólaljósin glampa á spegilsléttu enni þínu

Þú stígur upp úr árlegu jólabaði,,
Einstök Aloa-Vera blanda hjúpar þína vanga

Þú stígur upp úr alvöru jólabaði
Óbærilegur sléttleiki húðarinnar

credits

released November 18, 2022
Svanur Magnús: Texti og söngur
Ólafur Josephsson: Bassi, gítar, hljómborð, ásláttur
Lárus Sigurðsson: Skrautgítar
Nói Steinn Einarsson: Trommur

Árni Þór Árnason: Teikning

license

all rights reserved

tags

If you like Per: Segulsvið, you may also like: